...
...
...
...
...



Svona krepputal...






Ég talaði einhvern tímann um það hér að ég ætti mér draum. Ég á nú framhalds-draum. Hann er um CANON 5D MARK II. Hún er ekki enn komin á markað. En mæ ó mæ...ég gæfi næstum fótlegg fyrir hana. Fyrir áhugasama...http://www.dpreview.com/previews/canoneos5dmarkII/.
Ég hlakka svo til í kvöld. Erum að fara á okkar þriðja sundnámsskeið á Selfossi. Vá hvað er erfitt að bíða.


Þegar ég fór að sofa átti ég allt mitt í einkavæddum Landsbanka. Þegar ég vaknaði í morgunn átti ég orðið allt mitt í nýjum ríkisvæddum Landsbanka Íslands. Svona gerast kaupin á eyrinni. Kreppuástandið virðist vera læða sér jafnvel hingað inn á Hvolsvöllinn friðsæla.